Nokia N81 8GB - Halló

background image

Halló

4

Halló

Gerð: Nokia N81-1. Hér eftir kallað Nokia N81.

Nokia N81 8GB tækið er stútfullt af skemmtun!

Það býður upp á tónlist í góðum gæðum og leiki og er fágað og flott útlits með glæsilegum 2,4 tommu skjá,
sérstökum miðlunar- og leikjatökkum, frábærum hljómgæðum og 8 Gb minni.

Með Nokia N81 8GB tækinu geturðu hlustað á uppáhaldslögin þín meðan þú ert á ferðinni. Nokia Music Store* býður
upp á meira en milljón lög sem hægt er að skoða og kaupa með því að nota N81 8GB tækið og heima með samhæfri tölvu.
Ef þér leiðist að nota snúrur skaltu koma á tengingu við samhæf víðóma heyrnartól um Bluetooth-tengingu.

Spilaðu gæðaleiki með sérstökum leikjatökkum og einstökum myndgæðum sem gefa hugtakinu „skemmtun“ alveg
nýja merkingu.

Margmiðlunarvalmyndin veitir beinan aðgang og þú getur skoðað efnið á auðveldan og fljótlegan hátt. Prófaðu
hina snjöllu takkalýsingu sem felur takkana þar til þú þarft að nota þá.

Góða skemmtun!

*Upplýsingar um aðgengi að Nokia Music Store í heimalandi þínu eru á slóðinni music.nokia.com.