Efni samstillt, sótt eða sent
Eftir fyrsta flutninginn er hægt að velja úr eftirfarandi
til að hefja nýjan flutning, eftir því af hvaða gerð hitt
tækið er:
að samstilla efni milli Nokia N81 og hins tækisins,
ef hið síðarnefnda styður samstillingu. Samstillt er í báðar
áttir. Ef efni er eytt í öðru tækinu eyðist það í báðum
tækjunum. Ekki er hægt að endurheimta eydda hluti
með samstillingu.
að sækja gögn af hinu tækinu og setja í Nokia N81.
Með því móti eru gögn af hinu tækinu flutt yfir
í Nokia N81. Þú kannt að vera beðinn um að geyma
eða eyða upprunalega gögnunum í hinu tækinu, eftir
því af hvaða gerð það er.
til að senda gögn úr Nokia N81 í hitt tækið.
Ef ekki er hægt að flytja efni með
Símaflutningur
, sem fer
eftir gerð hins tækisins, þá er hægt að setja efnið í
Nokia
mappa
í C:\Data\Nokia eða E:\Data\Nokia og flytja það
þaðan. Þegar þú velur möppu til flutnings er efnið samstillt
í samsvarandi möppu í hinu tækinu, og öfugt.
Notaðu flýtivísa til að endurtaka flutning
Að gagnaflutningi loknum er hægt að vista flýtivísi með
flutningsstillingunum á aðalskjánum og þá er hægt að
endurtaka sama flutning síðar.
Til að breyta flýtivísinum skaltu fletta að honum og velja
Valkostir
>
Stillingar flýtivísis
. Til dæmis er hægt að
búa til nýtt nafn eða breyta nafni flýtivísisins.
Notkunarskrá birtist eftir hvern flutning. Hægt er að sjá
notkunarskrá fyrri flutnings með því að fletta að flýtivísi
á aðalskjánum og velja
Valkostir
>
Skoða notkunarskrá
.
Flutningsvandi leystur
Ef efni sem á að flytja hefur verið breytt í báðum tækjunum
reynir tækið sjálfkrafa að fella breytingarnar saman. Ef það
er ekki hægt kemur upp flutningsvandi. Veldu
Skoða hvern
Nokia N81
14
fyrir sig
,
Forg. í þennan síma
eða
Forg. í hinn símann
til
að leysa vandann. Hægt er að fá frekari leiðbeiningar með
því að velja
Valkostir
>
Hjálp
.