
Símtali svarað eða hafnað
Til að svara hringingu skaltu ýta á hringitakkann eða
opna símann.
Til að slökkva á hringitóninum þegar einhver hringir í þig
skaltu velja
Hljóð af
.
Ýttu á hætta-takkann ef þú vilt ekki svara símtali. Ef þú
hefur kveikt á flutningsleiðinni
Símtalsflutningur
>
Ef
á tali
er símtal einnig flutt þegar því er hafnað. Sjá
„Símtalsflutningur“ á bls. 122.
Ef þú velur
Hafna
til að hafna innhringingu geturðu sent
textaskilaboð til að láta þann sem hringdi vita að þú
getur ekki svarað í símann. Veldu
Valkostir
>
Senda
textaskilaboð
. Til að setja þennan valkost upp og
skrifa stöðluð textaboð, sjá „Símtöl“ á bls. 121.