Forsendur fyrir samnýtingu
hreyfimynda
Þar sem nauðsynlegt er að koma á sambandi við UMTS-
símkerfi áður en hægt er að nota
Samn. hreyfim.
veltur
það hvort þú getir notað
Samn. hreyfim.
á því hvort slíkt
símkerfi sé til staðar. Upplýsingar um farsímakerfið,
þjónustuna og gjald fyrir hana fást hjá þjónustuveitunni.
Til að hægt sé að nota
Samn. hreyfim.
þarftu að gera
eftirfarandi:
•
Gakktu úr skugga um að tækið þitt sé sett upp fyrir
tengingar á milli einstaklinga. Sjá „Stillingar“ á bls. 95.
•
Gakktu úr skugga um að þú hafir virka UMTS-tengingu
og sért innan dreifisvæðis UMTS-símkerfis. Sjá
„Stillingar“ á bls. 95. Ef þú byrjar samnýtinguna meðan
þú ert innan UMTS-farsímakerfis og skipt er yfir í GSM-
farsímakerfi, lýkur samnýtingunni en símtalið heldur
áfram. Ekki er hægt að hefja
Samn. hreyfim.
nema þú
sért innan UMTS-þjónustusvæðis.
•
Gakktu úr skugga um að bæði sendandinn og
viðtakandinn séu skráðir á UMTS-símkerfið. Ef þú býður
einhverjum í samnýtingu og tæki viðkomandi er ekki
innan UMTS-þjónustusvæðis eða býður ekki upp
á
Samn. hreyfim.
eða er stillt á tengingu á milli
einstaklinga veit viðkomandi ekki að þú sért að senda
honum boð. Þú færð villuboð um að viðtakandinn geti
ekki samþykkt boðið.