Snið án tengingar
Sniðið
Ótengdur
gerir þér kleift að nota símann án þess að
tengjast við símkerfið. Þegar þú virkjar sniðið
Ótengdur
er
slökkt á tengingunni við þráðlausa símkerfið og það gefið
til kynna með
í sendistyrksvísinum. Lokað er á allar
þráðlausar sendingar til og frá tækinu. Ef þú reynir að
senda skilaboð er þeim komið fyrir í úthólfinu þaðan
sem þau eru send síðar.
Þegar sniðið
Ótengdur
er virkt er hægt að nota tækið án
(U)SIM-korts.
Mikilvægt: Í ótengdu sniði er ekki hægt að hringja,
svara símtölum eða nota aðra valkosti þar sem þörf er
á tengingu við farsímakerfi. Áfram kann að vera hægt
að hringja í það neyðarnúmer sem er forritað í tækið.
Eigi að hringja verður fyrst að virkja símaaðgerðina
með því að skipta um snið. Ef tækinu hefur verið læst
skal slá inn lykilnúmerið.
Þegar þú hefur valið sniðið
Ótengdur
geturðu áfram notað
þráðlaust staðarnet, t.d. til þess að lesa tölvupóst eða vafra
á internetinu. Mundu að fara að öllum viðeigandi
öryggisreglum þegar þú kemur á og notar þráðlausa
staðarnetstengingu. Sjá „Þráðlaust staðarnet“ á bls. 72.
Einnig er hægt að nota Bluetooth-tengingu í sniðinu
Ótengdur
. Sjá „Bluetooth-tengingar“ á bls. 74.
Slökkt er á sniðinu
Ótengdur
með því að ýta á rofann
og velja annað snið. Þá verða þráðlaus samskipti aftur
möguleg (ef nægur sendistyrkur er fyrir hendi).
3-D tónar
Ýttu á
og veldu
Verkfæri
>
Hjálparforrit
>