Nokia N81 8GB - Gagnageymslan forsniðin

background image

Gagnageymslan forsniðin

Þegar gagnageymslan er forsniðin er öllum gögnum eytt
úr henni varanlega. Taka skal öryggisafrit af gögnum sem
á að geyma áður en gagnageymslan er forsniðin. Hægt er
að nota Nokia Nseries PC Suite til að afrita gögn yfir
á samhæfa tölvu. Stafræn réttindi (DRM) geta komið
í veg fyrir að sum afrituð gögn verði sett upp aftur.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar um þau stafrænu
réttindi sem gilda um efnið. Sjá einnig „Stafræn réttindi“
á bls. 112.

Til að forsníða gagnageymsluna skaltu velja

Valkostir

>

Forsníða gagnageymslu

. Veldu

til að staðfesta valið.

Ekki er tryggt að öllum trúnaðarupplýsingum sem vistaðar
eru í gagnageymslu tækisins sé varanlega eytt þó að hún
sé forsniðin. Við venjulegt forsnið er forsniðið rými aðeins
merkt sem tiltækt pláss og vistfangi til að finna skrárnar
á ný er eytt. Það kann að vera hægt að endurheimta
forsniðin eða jafnvel yfirskrifuð gögn með til þess
gerðum tækjum og hugbúnaði.